Nú hefur þú tækifæri til að gerast boðberi hreyfingar í Hreyfiviku

Hreyfivika UMFÍ er framundan dagana 29. maí – 4. júní næstkomandi. Nú gefst þér tækifæri til að gerast boðberi hreyfingar en í síðustu hreyfiviku varð sprengin í nýjum boðberum og viðburðum um land allt. Henný Árna heyrði í Sabínu Steinunni landsfulltrúa hjá UMFÍ og ræddu þær um hreyfivikuna sem framundan er, hvernig á að snúa sér í því að gerast boðberi hreyfingar og hvar er best að nálgast upplýsingar um viðburði sem í boði verða. Jafnframt mikilvægi hreyfingar á öllum aldri. Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Sabínu: http://www.sudurlandfm.is/2017/05/23/nu-hefur-thu-taekifaeri-til-ad-gerast-bodberi-hreyfingar-hreyfiviku/