Monday May 25 2020

Þristar hjólasprettsáskorun á Strava

Egilsstaðir, Egilsstaðir 700, Iceland Hildur Bergsdóttir Hildur Bergsdóttir
  • Hvar Egilsstaðir,
    Iceland
  • Viðburður byrjar

Þristur blæs til Sprettaáskorun (Segment) í Hreyfiviku. Til að vera með þarftu að ganga í hópinn „Þristur-hjól“ á Strava https://www.strava.com/clubs/thristur-hjol. Einungis verða skoðaðir tímar þeirra sem eru í hópnum. Reglurnar eru einfaldar. 1. Þú gengur í hópinn Þristur – hjól 2. Þú hjólar sprettinn með Strava í gangi eins oft og þú vilt 3. Keppandi verður að hjóla undir eigin afli. Vegleg verðlaun verða gefin fyrir bestu tímana í hverjum flokki ásamt útdráttarverðlaunum. Verðlaunin eru í samstarfi við Fljótsdalshérað og Þjónustusamfélagið á Héraði. Við hvetjum ykkur öll til að njóta þjónustunar í heimabyggð. Verðlaunað verður fyrir 19 ára og yngri og 20 ára og eldri í bæði karla- og kvennaflokki Keppnin er hluti af stigakeppni Sprettáskorunar Þristar sem fram fer í sumar en ætlunin er að vera með sex spretti í sumar. Við tilkynnum reglulega hér undir viðburðnum hvaða sprettur verður fyrir valinu og verður hver sprettur opinn í viku. Besti tími segments gefur 20 stig, næsti fær 18 og þriðji 16. Hvert sæti þar á eftir einu stigi minna niður í 1 stig. Haldið verður utan um stig hvers segments og mun svo samanlagður stigafjöldi gilda sem heildarskor í áskoruninni og einn standa uppi, í hverjum flokki, stigahæstur sprett meistari Þristar 2020. Tvö auka stig fást ef viðkomandi nær að slá heildarmet sprettsins. Þá gildir sá sem á metið í lok viðkomadi keppni (Ef fleiri en einn slá metið) Endilega líkið við facebook síðu Þristar og hafið samband í gegnum hana ef eitthvað er óljóst. Keppendur eru á eigin ábyrgð, muna að þetta er upp á gamanið og farið varlega.