Saturday Jun 01 2019

Línuvegurinn yfir Skarðsheiði

Skorholtsmelar, Borgarnes 310, Iceland Hreyfivika UMFÍ Alexandra Ægisdóttir
  • Hvar Borgarnes,
    Iceland
  • Viðburður byrjar
    10:00

Línuvegurinn yfir Skarðsheiði! Göngufólk mætir 10:00 við Skorholtsmela (Fiskilæk), hjólarar og hlauparar mæta 11:00! Skarðsheiðarvegur er hin forna þjóðleið milli Leirársveitar og Andakíls, þvert fyrir vesturenda Skarðsheiðarinnar, þ.e. um Miðfitjaskarð milli Skarðsheiðar að austan og Hafnarfjalls og Hrossatungna að vestan. Þegar lagt er upp að sunnanverðu er hægt að velja um 2-3 mismunandi leiðir, en einfaldast er að byrja á Vesturlandsveginum á Skorholtsmelum, rúmum kílómetra sunnan við Fiskilæk í Melasveit. Skorholtsmelar eru jökulruðningurinn milli bæjanna Skorholts og Fiskilækjar, og á umræddum stað liggur svolítill afleggjari til norðurs, þ.e. til hægri ef leiðin liggur frá Reykjavík vestur og norðurum. Fyrstu 5 kílómetrana eða svo liggur leiðin eftir greiðfærum malarvegi um mela og birkikjarr upp að fjallsrótum. Síðan tekur sjálfur heiðarvegurinn við.