Wednesday May 29 2019

Jóga í vatni

Hólaskóli - Háskólinn á Hólum, Hólar í Hjaltadal 551, Iceland Aqua Jóga Pálína Hildur Sigurðardóttir
  • Hvar Hólar í Hjaltadal,
    Iceland
  • Viðburður byrjar
    20:00

Við gerum aðlagaðar jógaæfingar að vatni, slökum á í flotbúnaði og hugleiðum í heitum potti í lok tímans. Hreyfing í vatni slakar náttúrulega á vöðvum, viðheldur hreyfigetu liða, þjálfar djúpvöðvavirkni og losar streitu. Sundlaugin verður á bilinu 34-35 gráðu heit og kostar 4000- kr inn. Innifalið í verðinu er aðgangur að lauginni og afnot af flotbúnaði sem er notaður í slökuninni. Það er EKKI posi á staðnum. Vatnið er uppspretta hvíldar, vellíðanar og flæðis. Vertu velkomin heim að Hólum. Umsjón: Pálína Hildur Sigurðardóttir jógakennari í vatni, flotþerapisti og stofnandi Aqua Jóga