Monday Jun 03 2019

Fardagafossáskorun

Fardagafoss, Egilsstaðir 700, Iceland Hildur Bergsdóttir Hildur Bergsdóttir / UMF Þristur
  • Hvar Egilsstaðir,
    Iceland
  • Viðburður byrjar

Hvað nærð þú mörgum ferðum upp að Fardagafossi í Hreyfivikunni? Þátttakendur í Fardagafossáskorun Þristarins ganga upp að Fardagafossi og smella mynd af sér (sjálfu) sem sannar að þeir hafi komist upp. Þátttakendur pósta myndinni á Instagram og/eða Facebook undir myllumerkinu #fardagafoss2019 (muna að hafa myndina public). Allar myndirnar fara í pott og eiga þátttakendur kost á að vinna hreyfivæna vinninga. Því fleiri ferðir, því meiri möguleikar á vinningi. Hreyfivika UMFÍ stendur yfir frá 27.maí-2.júní. Þristurinn stendur fyrir margvíslegum viðburðum í vikunni. Fylgist með á Facebook-síðu Þristar.