Thursday Jun 01 2017

Málþingið "Heilsa og hollusta fyrir alla 2017"

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Háholti 35, Mosfellsbær 270, Iceland Ólöf Kristín Sívertsen Heilsueflandi samfélag - Mosfellsbær
  • Hvar Mosfellsbær,
    Iceland
  • Viðburður byrjar
    19:30

Áhugavert og skemmtilegt málþing í Framhaldsskólanum þar sem mikilvægi samvinnunnar svífur yfir vötnum. Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og starfsmaður karlalandsliðsins í knattspyrnu, mun skyggnast á bak við tjöldin á EM og útskýra hversu miklu máli hver einstaklingur skiptir í sterkri liðsheild, við heyrum einnig frá fulltrúum skólanna okkar og síðast en ekki síst kemur í ljós hver hlýtur lýðheilsuviðurkenninguna GULRÓTINA 2017! Aðgangur ókeypis, boðið verður upp á léttar veitingar og allir hjartanlega velkomnir.