Monday May 29 2017

HreyfiSelfie leikur

Hrísey, Hrísey 630, Iceland Ingólfur Sigfússon Ungmennafélagið Narfi
  • Hvar Hrísey,
    Iceland
  • Viðburður byrjar

HreyfiSelfie er skemmtilegur leikur til að taka þátt í með fjölskyldu og vinum í Hreyfivikunni þar sem þessi tvö áhugamál eru sameinuð, að hreyfa sig og taka selfie. Hægt er að taka selfie hvar sem er meðan verið er að stunda hreyfingu, en hér eru nokkrar hugmyndir. Endilega deilið myndinni á samfélagsmiðlum og merkið #minhreyfing. Jafnframt væri gaman ef Ungmennafélagið Narfi, Hrísey væri merkt á myndum á facebook. Markmið leiksins er umfram allt bara að hreyfa sig og hafa gaman. 1. Upp á háborði með sólskinsbros. 2. Í ræktinni að hnykla vöðvana. 3. Við hliðið í hlaupaskóm. 4. Stund milli stríða í ringó eða frisbí. 5. Með blautt hár eftir sundferð. 6. Í loftinu fyrir ofan ærslabelginn. 7. Með hjálm á reiðhjóli. 8. Í minigolfi Góða skemmtun - gleðilega Hreyfiviku!