Monday May 29 2017

Fjölskylduganga á Stórhöfða Hafnarfirði

Hafnarfjörður, Hafnarfjörður 221, Iceland Jóhanna Fríða Dalkvist Jóhanna Fríða
  • Hvar Hafnarfjörður,
    Iceland
  • Viðburður byrjar
    18:30

Stórhöfði er ljúft og þægilegt fjall uppgöngu en með mikið og gott útsýni og því tilvalinn fyrir fjölskyldugöngu, fyrir tímanauma og fyrir þau sem langar aðeins upp í móti en treysta sér ekki á stærri fjöllin. Stórhöfði er rétt sunnan við Hvaleyrarvatn. Þegar komið er að vesturenda Hvaleyrarvatns er beygt til hægri ef komið er Vallarmegin frá, en til vinstri ef komið er frá Kaldárselsvegi, þaðan er svo örstutt keyrsla að upphafsstað göngu. Þessi ganga er fyrir alla sem geta gengið aðeins upp í móti, ættum ekki að vera komin seinna niður en um kl. 20:30. Hækkun um 100 m, miðað við 22 m byrjunarhæð. Sjá gönguleiðina á mynd, græna línan. Sjáumst mánudaginn 29. maí, kl. 18:30 Kv. Jóhanna s. 8403933