Monday May 29 2017

Tchoukball þjálfaranámskeið

Óseyri 1, Fáskrúðsfirði 750, Iceland Ungmennafélagið Valur Reyðarfirði Aðalheiður Vilbergsdóttir
  • Hvar Fáskrúðsfirði,
    Iceland
  • Viðburður byrjar
    09:00

Tchoukball er íþrótt sem okkur langar að kynna betur fyrir Íslendingum og fáum til okkar varaformann Alþjóða Tchoukball sambandsins frá Ítalíu til að vera með þjálfaranámskeið í greininni. Námskeiðið er kl. 09:00 - 16:00, 29. og 30. maí og lýkur með skriflegu prófi. Við hvetjum alla til að kynna sér þetta og einnig alla þá sem vinna með hreyfingu barna og unglinga eða hreyfihamlaða. Í stuttu máli samanstendur leikur í þessari íþrótt af tveimur 7 manna liðum á um það bil handboltavelli, bolta og tveimur sérstökum Tchoukball mörkum. Leikurinn er hraður en samt sem áður eru reglurnar þannig að í liðunum geta bæði kyn á öllum aldri verið með. Kjörið til að víkka sjóndeildarhringinn og fá nýja íþrótt inn í þekkingarbankann. Heimaíða alþjóða Tchoukball sambandsins þar sem hægt er að skoða alls konar myndir og myndbönd frá íþróttinni - www.thcoukball.org