Saturday May
28
2016
80 ára afmælishátíð Umf. Selfoss
Íþróttahús Vallaskóla, Selfoss 800, Iceland Gissur Jónsson Gissur Jónsson-
Hvar Selfoss,
Iceland -
Viðburður byrjar
11:00
Ungmennafélag Selfoss á 80 ára afmæli í ár, en félagið var stofnað 1. júní 1936. Í tilefni þessa merka áfanga hefur félagið ákveðið að halda glæsilega afmælishátíð laugardaginn 28. maí þar sem lögð verður áhersla á hreyfingu og gleði. Sett verður upp hreystibraut frá Skólahreysti í íþróttahúsi Vallaskóla þar sem fjölskyldur og vinir geta reynt sig í skemmtilegri hreyfingu. Hreystibrautin verður opin frá kl. 12-17. Afmælishátíðin hefst með Grýlupottahlaupinu kl. 11:00 og sérstök hátíðardagskrá verður í íþróttahúsinu kl. 14:00. Afmælishátíðinni lýkur á Selfossvelli kl. 16:00 þegar mfl. kvenna tekur á móti Blikum í Pepsi-deildinni en í tilefni afmælisins verður frítt á völlinn.