Saturday Sep 26 2015

Hjólað rólega frá Hlemmi á laugardögum (kortið ónákvæmt)

Hlemmur, Reykjavik 105, Iceland Morten Lange Landssamtök hjólreiðamanna
  • Hvar Reykjavik,
    Iceland
  • Viðburður byrjar
    10:15

English (Íslenska fyrir neðan) : We meet between 10:00 and 10:15 at the Hlemmur bus station in Reykjavik, and cycle slowly and according to the wishes of the group. No-one left behind. It is fun to master cycling onm paths and quiet streets and those tha wish sit down for tea/cofee etc at about 12 o'clock at a suiting location. No predetermined route. Futher info through phone or email. See below. ---------------------------------------------------------------- ////////////////////////// ---------------------------------------------------------------- Í vetur verða farnar hjólreiðaferðir frá Hlemmi á laugardagsmorgnum. Að þeim standa Landssamtök hjólreiðamanna og aðildarfélag þess, Hjólafærni. Fyrir-hjólari flesta laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og stjórnarmaður Landssamtaka hjólreiðamanna. Fyrsta ferðin verður farinn laugardaginn 19. september. Síðan verður farið hvern laugardag fram til 28. nóvember. Engar ferðir verða í desember en fyrsta ferð eftir áramót verður 2. janúar og síðan vikulega til 30. apríl. Mæting er á Hlemmi milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15. Vikulegar upplýsingar birtast á Facebook síðu LHM: Landssamtök hjólreiðamanna. Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borgina og höfuðborgarsvæðið eftir rólegum götum og stígum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í borginni. Þessar ferðir eru ekki ósvipaðar þriðjudagskvöldferðum Fjallahjólaklúbbsins á sumrin en áherslan er hér á samgönguhjólreiðar í borginni og mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð. Ferðin er ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta tekið þátt. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is. Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti. Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu á öðrum tímum. Hjólaafærni veitir margháttaða þjónustu sem hægt er að kynna sér á vefnum www.hjólafærni.is eða með því að hringja. Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð. / / Árni Davíðsson s. 862 9247 arnid65@gmail.com / / Sesselja Traustadóttir s: 864 2776 hjolafaerni@hjolafaerni.is