Wednesday Oct 01 2014

Ringókynning

Íþróttahúsið á Seyðisfirði, Seyðisfjörður 710, Iceland Hildur Bergsdóttir UÍA
  • Hvar Seyðisfjörður,
    Iceland
  • Viðburður byrjar
    20:00

Ringó er stórskemmtileg íþrótt sem svipar nokkuð til blaks en í stað bolta eru notaðir tveir gúmmíhringir, sem liðin kasta yfir net og reyna að koma í gólf hjá andstæðingnum. Aðeins má grípa hringina með annarri hendi og þar sem tveir hringir eru á lofti í einu verður oft æði mikið líf og fjör á vellinum. Spilað er á blakvelli í fjögurra manna liðum og þátttakendur þurfa ekki að búa yfir neinni sérstakri kunnáttu eða getu annarri en að geta gripið með annarri hendi og kastað yfir netið. Ringó er því frábær íþrótt fyrir fólk á öllum aldri og skemmtilegt hópefli fyrir fjölskyldur, vinahópa og vinnustaði. við hvetjum því sem flesta til að kíkja við í íþróttahúsinu, kynna sér málið og láta á fimi sína í ringó reyna.